HÉR RÁÐA KRÚTTIN RÍKJUM
Könnun
Hvernig fannst þér golfið?





10.09.2008 17:46:04 / krutt

Golfmótið búið...

Golfmót fjármálafyrirtækjanna á Akureyri var um síðustu helgi og ekki létu Kb-krúttin sitt eftir liggja að taka þátt í því,   Það voru þau Rafn, Gurra, Guðrún og Adda sem héldu uppi heiðri deildarinnar og svo skráðu nokkrar hressar konur sig í púttkeppnina.

 -          Allir stóðu sig mjög  vel og voru banknaum sínum til sóma.:haha:

-          Engum datt í hug að smakka dropa af söngolíu á meðan keppnin fór fram:$

-          Nokkrir þáðu sopann samt þegar keppnin var búin.8|

-          Ingi og Jónas komu sterkir inn með miðana, Halla Ingvars fékk ofurást á þeim.(miðunum):d

-          Maturinn var mjög góður.:haha:

-          Kaupþings fólk sópaði að sér verðlaunum sem og miðum, man ekki hvað þessir miðar voru notaðir.

-          Gestur sýndi afbragsgóða takta og komst á verðlaunapall, hann ætlar ekki að láta sig vanta á næsta ári.:haha:

-          Adda var þó betri en Gestur en komst ekki á verðlaunapall, kæra er í gangi hjá jafnréttisráði.:whut:

-          Elín sýndi ótrúlega takta í púttinu og stefnir á atvinnumennsku í golfi.8)

-          Margar fallegar myndir voru teknar, þeim var flestum eytt, óvart.:!:

-          Sumir rétt fóru í matinn, aðrir fóru heim strax eftir matinn nokkrir heimsóttu Öddu, einn  sat á tröppunum hennar og örfáir fóru í bæinn.:lol:

-          Söngglaðar konur stofnuðu söngsveitina “Rámir barkar” og ætla að troða upp á næsta föstudag þegar Haustfagnaður Kaupþings verður.

-          Löggan stoppaði einhverja og minnti á mikilvægi þess að nota endurskinsmerki.:|

-          Einhver datt og fékk skrámur, líkleg skýring, ofáreynsla í golfinu fyrr um kvöldið.:o

-          Einhverjum var ekki hleypt inn á skemmtistaðina, þóttu víst of unglegir.8)

-          Einhverjir voru þreyttir á laugardaginn, sem segir okkur að fólk reyndi að gera sitt besta í golfinu.:!:

-          Einhverjir voru búnir að skrá sig í göngu inni í Kjarnaskógi á sunnudeginum en mættu ekki, sennilega ennþá þreyttir eftir golfið,  já golf er alvöru íþrótt. :!:

-          Einhverjir voru ennþá þreyttir á mánudag, ótrúlegt...:$:$:$

8)8) Alla er farið að hlakka til næstu helgi.:haha:

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.07.2008 19:33:29 / krutt

Fréttir

Mér þótti við hæfi að skella inn smá frétt af krúttunum en nú eru litlu guttarnir þeirra Sigrúnar og Perlu búnir að fá nöfn og svo voru  STÓR tímamót hjá henni Höllu okkar.
Strákurinn þeirra Sigrúnar  og Hjálmars var skírður þann 25. júní og fékk nafnið Jóhann Grétar og  strákurinn þeirra Perlu og Sigurvins var skírður þann 12. júlí og fékk nafnið Ari.   Falleg nöfn sem þeir félagar fengu og er það einlæg ósk okkar kb-krútta að Guð og gæfan fylgi þessum fallegu nöfnum.

Svo var það hún Halla okkar sem gekk í það heilaga í gær 12. júlí og viljum við óska henni og Jóni innilega til hamingju með brúðkaupsdaginn og er það ósk okkar að þau verði umvafin gleði og hamingju um ókomin ár./ G. Fjóla.



» 1 hafa sagt sína skoðun

20.06.2008 08:18:39 / krutt

Matgæðingur í 25. viku

Það er hún Jórunn okkar sem tók áskorun frá Gurru og hér koma hennar svör og uppskrift. 

Gerir þú mikið af því að elda og finnst þér það skemmtilegt?   geri nú ekki mikið af því og finnst það ágætt. Kallinn er duglegri að elda og er einnig áhugasamari um matreiðslu. Oftast sé ég um að borða matinn sem hann eldar :)  

Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?      Vatnskanna með ísköldu vatni, mjólk, smjör.

Styðstu við matreiðslubækur?     stundum, en finnst það stundum erfitt því ég vil alltaf fara nákvæmlega eftir uppskriftinni  og eitt klúðrast um 10 gr. þá er allt ónýtt hjá mér.

Hvað er uppáhaldsmaturinn þinn?   hamborgarahryggur a la Láki, með brúnuðum kartöflum og sveppasósu sem Láki býr til, sósan er æði !

 Áttu þér uppáhaldseldhúsáhald?     uppþvottalög og uppþvottabursti :) 

 Hvað var það fyrsta sem þú lærðir að elda?     baka skonsur og sem voru by the way geðveikar. Ég að sjálfsögðu man ekki uppskriftina lengur.

 Hvaða grill hugmynd ætlar þú að deila með lesendum Kb-krútta ?     úff, það yrði í rauninni að vera eitthvað sem Láki kokkar stundum. En þegar það er gott veður úti og Láki í stuði til þess að grilla þá grillar hann alltaf Sveppagumsið sitt einsog hann kallar það.

En þetta er hálfgerð sósa sem hann setur í sveppina og grillar þá.

Í sósunni er:

-væn smjörklípa

- nokkrir bitar af feta osti

- smá sætt sinnep

- sítrónupipar eftir þörfum

- slurk af barbeque sósu

- Köd og Grill krydd

Allt stappað saman í mauk og troðið inn í sveppina sem stilkarnir hafa verið fjarlægðir úr.

Sett í fallega skál úr álpappír og svo beint á grillið :)

 Þetta er geggjað gott :D

 Jórunn skorar svo á Öddu sem næsta matgæðing það verður spennandi að sjá hvaða grilluppskrift hún  gefur okkar. :d/


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.06.2008 16:20:56 / krutt

Halló

 Finnst rétt að skella inn hér smá frétt svona til að láta vita að við krúttin erum í fullu fjöri.

Vil samt byrja á því að óska þeim Perlu, Sigurvin  og fjölskyldu til hamingju með litla drenginn sem fæddist þann 5. júní sl.  Nú er 3 úr hópnum okkar í fæðingarorlofi og Bryndís farin til Noregs, þar við bætist að fólk er að byrja að fara í sumarfrí svo á köflum er ansi tómlegt  hér í deildinni okkar.:$:$

En við berum okkur vel og finnum okkur alltaf eitthvað skemmtilegt að gera svona meðfram vinnunni.:haha::haha:

Óvissuferðin sem farin var í 3. maí tókst einstaklega vel og fá þær stöllur Inga og Þóra þrefalt húrra fyrir að skipuleggja hana.  Hér er gerði grein fyrir ferðinni :http://kbkruttin.blogcentral.is/sida/2335878/ , vonandi verður hægt að skella inn  myndum fljótlega.:|:|



Við krúttin tókum líka þátt í átakinu "Hjólað í vinnuna" og gekk það mjög vel þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi ekki alltaf verið okkur sérlega hliðhollir.8)8)  Haldið var ærlegt kveðjuhóf fyrir Bryndís föstudaginn 23. maí  og  sl. viku þá ákváðum við að fara í annað átak sem  var á vegum bankans og gekk út á það að reyna að draga úr notkun á bílum.  Skemmst er frá því að segja að okkur tókst alveg frábærlega vel upp í þessu átaki og á ég ekki von á öðru en að við fáum einhverjar viðurkenningar fyrir okkar framtak.   Það var yfirleitt ekki nema einn bíll sem tilheyrði okkar deild sem nýttur var til að komast til og frá vinnu, en annars var gengið, hjólað og tvær gellur eru svo komnar á  vespur.   :haha::haha:




En ég læt hér staðar numið en vil minna á að við í skemmtinefnd stefnum á að skella inn fleiri myndum þegar vel liggur á okkur og eins ætlum við að reyna að setja inn upplýsingar um allt sem er á döfinni hjá okkur svo þeir sem ekki eru í vinnu geti fylgst hér með:!::!:  
 Á morgun birti ég svo uppskrift frá Jórunni en hún Gurra  skoraði á hana að gefa okkur næstu uppskrift. Veðurguðirnir spá blíðu í næstu vikur svo það eru tilvalið tækifæri til að prófa einhverjar nýjar grillhugmyndir.  Lifið heil/ G. Fjóla.

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.06.2008 09:37:30 / krutt

Matgæðingur í 23. viku:

 

 Gurra varð við áskorun Ingu Benetyté  og hér koma hennar svör:

 Gerir þú mikið af því að elda og finnst þér það skemmtilegt?  

Kallinn eldar nú orðið oftar en ég, en mér finnst gaman að elda vissa pottrétti og fiskrétti og svo þegar góða veislu gjöra skal, þá finnst mér gaman að elda

 Hvað áttu alltaf til í ísskápnum

AB mjólk, ost, ávexti, alltaf eitthvað grænmeti, ísl. smjör og smjörva, egg, og hitt og þetta sem gott er að nota í góða rétti.

 Styðstu við matreiðslubækur?    

Stundum, ef vanda á verkið, en get aldrei alveg farið eftir bókum, þarf alltaf að breyta eitthvað..

 Hvað er uppáhaldsmaturinn þinn?   

Þeir eru allt of margir uppáhaldsréttir mínir, en lambakjötsréttir af öllum gerðum standa nú uppúr og fiskréttir allskonar.

 Áttu þér uppáhaldseldhúsáhald?    

Rafmagnspönnuna mína góðu.

  Hvað var það fyrsta sem þú lærðir að elda?

 Steiktur fiskur í raspi, með miklum lauk, minnir mig.

 Hvaða grill hugmynd ætlar þú að deila með lesendum Kb-krútta ?  

Á ekki grill lengur, henti því í fyrra, grilla því ekkert. En, fannst  gott að grilla lambakótelettur, hafa létta góða sósu með úr sýrðum rjóma og ananasskurl út í, grillað grænmeti, t.d. sveppi, rauðlauk, tómata og ávexti af ýmsum tegundum sem bestir eru á hverjum tíma  og auðvitað verða að vera kartöflur, steiktar, grillaðar eða soðnar.  Ekki flókið mál.

En hér kemur uppskrift Gurru.:haha::haha:

 Kjúklingaréttur í ofni – fyrir 4 – 6 – einfaldur, en mjög góður

 4 – 6 kjúklingabringur, skinnlausar

1 sveppaaskja

1 bréf bacon

½ dós maí baunir

1 poki niðurrifinn ostur

 Sósa:

 2 dl. Grillsósa – Hunts

1 dl. Apríkósumarmelaði

1 dl. Sojasósa

100 gr. Púðursykur

50 gr. Smjör

Matreiðslurjómi eftir smekk, til að gera sósuna mýkri.

 Allt sem fer í sósuna, látið í pott og hitað.

 Kjúklingabringur skornar í strimla, létt steiktar á pönnu, lagðar í eldfast mót.

Sveppir og bacon, steikt á pönnunni, látið yfir kjúklinginn.

Gular baunir bætt þar ofan á.

Heitri sósunni helt yfir allt saman, ostinum stráð ofan á, látið í ofninn á  170°,

 í 30 – 45 mín, eða þar til kjötið er örugglega soðið í gegn og osturinn bráðinn og kominn með fallegan lit.

 Borið fram með soðnum hrísgrjónum og góðu salati, t.d. niðurrifnu hvítkáli og gulrótum, með smá appelsínusafa yfir.

 Þetta er alveg ljómandi gott.

 Verði ykkur að góðu.  :haha:

Kv. GB

 P.s. Ég skora næst á hana Jórunni, held að hún sé góður kokkur.  :haha:

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.05.2008 22:41:08 / krutt

Matgæðingur í 22. viku:

Hún Perla skoraði á Ingu Benetyté að svara nokkrum spurningum og koma með næstu grillhugmyndir fyrir okkur Kb-krúttin : )
 

Hér kemur það sem Inga sendi inn:

Gerir þú mikið af því að elda og finnst þér það skemmtilegt?   Já, ég kýs frekar að elda kvöldmat en að panta. 

Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?    Ost, sólþurrkaða tómata, ólívur, grænmeti og ávextir. 

Styðstu við matreiðslubækur?    Já, en ekki alveg 100%. Ég nota hugmyndir úr uppskriftum mikið. 

Hvað er uppáhaldsmaturinn þinn?   Nautasteik....well done 

Áttu þér uppáhaldseldhúsáhald?    Ég elska að elda í pottunum mínum. 

Hvað var það fyrsta sem þú lærðir að elda?    Pasta með steiktum pylsum og osti. 

Hvaða grill hugmynd ætlar þú að deila með lesendum Kb-krútta ?  

 Grillað svín að litháenskum hætti. Marinering: Skera kjötið í bita sem ætlar að hafa, salta og krydda með kjötkrydd eftir smekk og láta bíða í ísskáp yfir nótt. Blanda saman 50/50 majunes og tómatsósu, skerið lauk og bragðbætið með ediki. Nudda blöndunni í kjötið og láta standa í stofuhita í ca. 4 klst. Þá er hægt að byrja á að grilla. Besta bragðið fæst  þegar kjötið er grillað á kolagrilli. 

Ég skora  á Gurru sem næsta matgæðing því ég held að hún sé myndaleg í eldhúsinu :d

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.05.2008 08:41:48 / krutt

Matgæðingur í 21. viku:

Nýr leikur kominn í gang sem gengur út  á það að svara nokkrum léttum spurningum og gefa okkur svo einhverja góða grilluppskrift.
Það þótti við hæfi að hafa Perlu Fanndal  fyrsta matgæðing Kb-krútta.

En fyrst ætlar Perla að svara nokkrum spurningum:

 Gerir þú mikið af því að elda og finnst þér það skemmtilegt?  Mér finnst mjög gaman að elda og stússast í eldhúsinu og eyði þar mestum tíma þegar ég er heimavið.    Ég elda á hverju kvöldi og yfirleitt malla ég eitthvað fljótlegt í hádeginu um helgar líka.

 Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?   Kartöflur, egg, lauk, mjólk, sveppi, sætar kartöflur, epli, ost, sýrðan rjóma og svo auðvitað fjöldan allan af allskonar sósum og sultum.  Mér finnst mjög gaman að missa mig aðeins í sósu og krukkuhillunni í Hagkaup. 

 Styðstu við matreiðslubækur?   Já, ég styðst nokkuð mikið við þær en loka þeim iðulega áður en ég byrja að elda.  Það flækist stundum fyrir mér að fara eftir fyrirmælum :)   Ég er til dæmis steinhætt að nota uppskriftir þegar ég laga gerdeig (hef það bara missætt og hollt eftir því hvað ég ætla að gera úr því), pönnukökur eða baka marens. 

 Hvað er uppáhaldsmaturinn þinn?   Kjúklingur í alls kyns múnderingum stendur alltaf fyrir sínu.  En mér væri sama þótt ég fengi aldrei rautt kjöt og börnin mín eru sama sinnis.  Fiskur, kjúklingur og alls konar snarl er það sem okkur finnst best.   En húsbóndinn á heimilinu er ekki sama sinnis, hann er mikið fyrir kjöt og lítt hrifin af fiskmeti og það skapar stundum árekstra þegar ákveða skal kvöldmatinn.

 Áttu þér uppáhaldseldhúsáhald?   Nei, það held ég ekki.  Afi minn og amma brugðu þó búi um það leyti sem ég flutti að heiman og fékk ég flest allt úr eldhúsinu þeirra.  Mér þykir mjög vænt um alla þessa hluti en sumu hef ég þó þurft að henda eins og skaftlausum pottum og buffhamrinum sem skildi eftir sig svargráan lit á öllu sem hann kom nálægt.  Ég nota samt alltaf fallega kökukeflið hennar ömmu sem er úr hvítu postulíni með grænum höldum.  Svo ferðuðust þau mikið, afi og amma, og amma hefur verið dugleg að kaupa viskustykki hvar sem hún fór, ég á til dæmis eitt frá Lubeck í Þýskalandi, á því er ártalið 1979 og mánaðardagur fyrir árið.   Ég held mikið upp á þess hluti. 

 Hvað var það fyrsta sem þú lærðir að elda?   Ég held að það hafi verið kanilsnúðar í matreiðslu í skólanum en svo var mamma fljót að sjá að ég var með matreiðslugenin í mér og var snemma farin að láta mig steikja fisk og hræra í sósupottum. 

 Hvaða grill hugmynd ætlar þú að deila með lesendum Kb-krútta ?   Það er algjör skylda að prófa að grilla brauð.  Það er hægt að nota hvaða uppskrift sem er, gerdeig eða naanbrauð.  Naanbrauð geri ég eins og venjulegt gerbrauð en set hreina jógúrt í það og bara matarolíu í stað blöndu af smjörlíki og matarolíu sem ég nota venjulega. 

Ég verð að deila með ykkur sögu úr N6 (Norðurgata 6, heimili mitt er iðulega kallað N6 af vinum og vandamönnum).   Ég var búin að bjóða fólki í mat og elda dýrindis humarsúpu og ætlaði að bera fram með því grillað Naanbrauð.  Ég útbjó kökurnar á disk og það er í hlutverki húsbóndans að grilla í N6 eins og á flestum heimilum.  Ég rétti húsbóndanum diskinn og sagði ströng ,,það á bara að vera smá brúnn litur á því'' og setti upp smá grybbusvip til að leggja áherslu á orð mín.  Ég gerði þau afdrifaríku mistök að láta hann grilla brauðið meðan það var æsispennandi Liverpool leikur í sjónvarpinu.  Kolamolabrauðið fór nánast allt í ruslið en matarboðið er mjög eftirminnilegt meðal annars fyrir þessar sakir.

 Svo ætla ég að gefa ykkur uppskrift af magnaðri sósu sem systir mín setti saman og er góð með nánast öllum mat.

1 dós sýrður rjómi

1 desilíter (má vera bæði meira eða minna) af sætri chilli sósu frá Blue dragon

Saxaður blaðlaukur eftir smekk

Allt hrært saman og smakkað til með chilli sósunni.  Þetta er mjög gott með kjúklingabringum og ómissandi á brönsborðið með beikoni og eggi.  Já, og í kjúklingaborgara.   Eða til að dýfa brauði í.  Endalausir möguleikar.

 Hvern skorar þú á sem næsta matgæðing Kb-krútta ?   Ætli ég skori

ekki bara á Ingu Benetyté, það er svo gaman að fá uppskriftir úr annarri matarmenningu. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.05.2008 23:33:55 / krutt

Síðasta myndin í leiknum okkar :

Jæja nú er þessi leikur senn á enda og hér birtist síðasta myndin :
Hvaða krútt er hér á ferð með spékoppa í silfurskóm ?




» 9 hafa sagt sína skoðun

27.04.2008 14:58:02 / krutt

Fæddur prins

Kl. 06:17 í dag sunnudag 27. apríl fæddist þeim Sigrúnu og Hjálmari sonur.   Hann mældist 14 merkur og 51 cm, allt gekk vel og heilsast móður og barni vel.

Kb-krúttin vilja færa þeim öllum innilegar  hamingjuóskir.:haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.04.2008 22:08:08 / krutt

Leikur nr. 22. HVAÐA KRÚTT ER HÉR Á FERÐ?



Jæja börnin mín nú fer hver að verða síðastur að ná sér í stig í þessari skemmtilegu keppni sem verið hefur í gangi í vetur.  Innað við 5 stig eru þó eftir í pottinum svo allt getur gerst.  Nú er það ykkar að láta ljós ykkar skína :haha:


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14